Karellen
news

Vika 7

16. 02. 2018

Vikan hefur verið ansi annasöm í Uglukletti. Mánudagurinn byrjaði með bolludegi þar sem allir fengu bollu og börnin voru búin að búa til bolluvendi. Þriðjudagurinn bauð svo upp á áframhaldandi át og gleði þar sem við borðuðum saltkjöt og baunir í tilefni sprengjudagsins. Svo er það aðal dagur ársins á leikskólum en það er sjálfur öskudagur sem á að vísu 18 bræður en vonandi var bara ansi langt á milli þeirra bræðra þar sem veðrið lék ekki beint við landsmenn þann dag. En við skemmtum okkur konunglega, ball var haldið í salnum þar sem allskyns kynjaverur dönsuðu og sungu. Fimmtudagurinn var hinn rólegasti með sól og og blíðu og svo kom föstudagurinn með stelpukaffi og gleði í tilefni þess.

© 2016 - 2024 Karellen